04.06.2007 17:51:13 / aldis

nýtt blogg..

..er að færa bloggið mitt yfir a www.blog.aldisrun.com og verd með upphafssíðuna www.aldisrun.com. Síðan bætast sennilega smám saman við undirsíður :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 09:11:55 / aldis

HM i borðtennis

lauk um helgina. Ég sá nokkra leiki á Eurosport, sem var gaman..en samt ekki eins og að vera í höllinni ;) Var bara frekar heppin með leiki..sá skemmtilegan kvennaleik, þar sem önnur var varnarspilari, veit ekki hvað þær heita. og svo sá ég leikinn hjá Timo Boll og Kreanka (veit ekki hvernig það er skrifað ) ..svo sá ég gloppur af öðrum leikjum.

Það var samt ansi skondið að í leiknum hjá "strákunum" beindist myndavélin stundum uppí stúku og m.a. á ca. 10 ára strák sem átti fullt í fangi með að bora í nefið og gæða sér á afrakstrinum..hehe..og myndavélin var sko ekkert stutt á honum LOL

Af fréttum héðan er lítið..eða við Sigurjón erum búin að panta flug til Íslands i sumar (humm..það er nú reyndar kannski komið sumar). Ég flýg 27. júní (til að ná í skottið á GG) og hann 4. júlí, svo förum við saman til DK þann 10 júlí.

Við vöknuðum annars við svaka þrumuveður í nótt..hélt bara að það væri komið stríð eða e-ð...


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 12:07:32 / aldis

skiladi einu i gær og odru i dag..

..skila hinu..humm tegar tad er tilbuid, en tad er frestur til 31.mai. Tad versta er ad eg nenni ekki ad vinna i tessu sidasta verkefni.

Tad er annars ljuft ad vera buin med BS verkefnid mitt..nuna situr folk sveitt yfir tessu. Nokkrir eiga ad skila um manadamotin en flestir i lok juni (sem sagt krakkarnir i minum argangi)..tannig ad eg ætti kannksi ad vera satt vit tetta eina verkefni sem eg a eftir..hehe

Vedrid er buid ad vera (of) gott sidustu daga og erfitt ad sitja inni. Mer skilst to ad tad eigi ad byrja ad rigna i kvold og gera tad e-d afram. Tannig ad tad getur verid ad vid Grjoni hættum vid ad fara a tonleikana i Tivoliinu i kvold (tad eru alltaf tonleika kl. 22 a fostudogum).


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 09:22:20 / aldis

3 verkefni..

..eftir, misvel á veg komin..hehe

Það er aftur komin sól, eftir rigningarviku..sem gerir það ekki beint auðveldara að sitja inni að skrifa...

Held (og vona) að júníkúrsinn fari e-ð fram utandyra..en hann nefnist "projektledelse i byggeriet" :)

Jæja, best að halda áfram að gera e-ð að viti. 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 09:51:43 / aldis

spæling

..já, og núna er ég ekki að vitna til þess að við (bæði Ísland og Danmörk..en auðvitað mest Ísland) komumst ekki áfram í Eurovision.

Ég var nefnilega í prófi áðan..í munnlegu prófi.  Maður dró miða, talaði svo í 5 mínútur um efnið og fékk svo nokkrar spurningar.  En áður höfðum við (5 manna hópur) skilað inn skýrslu. Við vorum 4 sem fórum í prófið í dag, ég og einn annar fengum 7 en hinir tveir fengu 9.  Og ég var ekki sátt..því mér fannst mér ganga vel. Útskýringin sem ég fékk var að ég hefði virkað óörugg og stressuð...hehe..sem mér finnst bara alveg eðlilegt í munnlegu prófi. Allavega þá eru þessir tveir sem fengu hærra einmitt svona kjaftatýpur en ekki ég og "hin sjöan".  Þetta setti mig nú alveg úr stuði, svo ég nennti ekki að fara að versla eins og ég ætlaði..heldur fór bara heim í fýlu ;) En ætli maður verði ekki bara að taka þessu og reyna að gera e-ð að viti.

 Svo er náttúrulega Eurovision í kvöld og kosningavaka (tímamismunurinn er ekki beint hagstæður).  Og á morgun fer ég í skólannm eins og síðust 3 sunnudaga..að hitta sömu stelpuna..en í þetta skiptið verðum við að klára verkefnið, því við eigum að skila á mánudaginn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 18:39:23 / aldis

home alone..

..again

Grjóni fór til Íslands í morgun með atkvæðin okkar..maður þorir ekki að treysta á póstinn..hehe, nei þetta er víst vinnutengd ferð en hann fór samt sem áður með atkvæðin okkar. Hann verður í burtu í rúma viku. 

Á meðan mun ég sennilega vera á fullu í verkefnavinnu (sem ég er by the way alveg að fá nóg af) og taka prófið mitt á sjálfan kosninga/eurovison daginn.

Fór annars á æfingu áðan og það gekk bara vel..óvenju vel mætt miðað við að það er kominn maí...

Ég keypti mér vatnsmelónu áðan (ferkar stóra, því maður borgar fyrir stykkið), skar hana og fékk mér vænan bita.  Svo fattaði ég að það var ekkert sérstaklega mikið pláss í ísskápnum. Endaði með því að ég kom hálfri melónu inní ísskáp, fékk mér meiri melónu og er svo núna að borða ennþá meiri melónu. Úff hálf vatnsmelóna á sama degi..spurning hvort maður verði bara veikur..hehe


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 17:40:25 / aldis

aukaútgjöld

Já, við Grjóni prófuðum svolítið nýtt í síðustu viku...að fá sekt.  Við fórum sem sagt í kaffi til Fríðar eitt kvöldið, en hún á heima niðrí bæ.  Við sáum bíl fara og vorum mjög sátt við að ná stæðinu hans..borguðum í stöðumæli og allt.  En það var samt sem áður sekt á bílnum þegar við komum til baka, þar stóð að við værum 7,10 m frá gatnamótum en lögin kveða á um 10 m (en ef ég man rétt eru það 5 m á Íslandi)..þetta kostaði 510 kr :(

Annar leggst maí-mánuður bara vel í mig, ennþá nóg að gera í skólanum samt..en það er akkúrat vika eftir af kennslu.  Fer síðan í eitt munnlegt próf og á að skila 5 verkefnum. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 15:17:41 / aldis

sumar og sól

já hér er komið sumarveður og það er strax orðið erfitt að vera í skólanum eftir hádegi..hvernig verður það þá í júní?!

Ég hélt að ég væri nú bara alveg ágæt í dönskunni..þangað til núna um daginn.  Ég var að kaupa e-ð í matinn í Fötex (fyrir ca. 250 dkr) og bað um 200 kr yfir..nema hvað að stelpan hélt greinilega að ég hefði beðið um 1000 kr yfir, sem ég fékk..hehe.  Ég sé það (EKKI) fyrir mér á Íslandi að e-r biðji um 12 þúsund krónur yfir...

Í gær voru Íslanskir Aðalverktakar með kynningu í skólanum fyrir okkur Íslendingana..mjög áhugavert og góðar samlokur ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 21:49:51 / aldis

gleðilegt sumar..

..kæru vinir nær en mest fjær :)

Tengdó eru í heimsókn og þau komu með rok með sér..hehe.  Fórum á útskriftina okkar Sigurjóns í dag, það var bara stutt og laggott (annað en í HÍ) og svo léttar veitingar á eftir...jeij.

Ég fer í skólann á morgun en planið er að fara fínt út að borða annað kvöld. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 10:42:11 / aldis

ekki lengur..

..ein í kotinu :)

Sótti Grjóna útá flugvöll í gærkvöldi og það var notarlegt að sofna aftur með stóra bangsann minn..hehe

Það er annars bara sumarveður hérna og búið að vera í nokkra daga svo nú þurfum við bara að fara að dusta rykið/pöddurnar af grillinu.  


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 08:49:57 / aldis

ýsa og karftöflur..

..var á matseðlinum í gærkvöldi.  Fríður bauð mér nefnilega í mat til sín..og þetta var kærkomin máltíð, enda óralangt síðan ég fékk fisk síðast.

Ég var í skólanum nánast til miðnættis annan í páskum að gera verkefni, og við kláruðum það á þriðjudaginn.  Þannig að núna er eitt verkefni eftir í hverju fagi.

 Ég er annars bara heima í dag að læra, þar sem ég er ekki í neinum tímum á fimmtudögum...og það var svo gott að sofa í morgun..hehe


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 08:50:44 / aldis

Gleðilega páska

Jæja, ég er búin að planta mér inní stofu með páskaeggin mín og tilbúin ráðast á þau. Er hingað til bara búin að opna þau til að sjá málshættina (nema eitt sem var gæðaprófað á föstudaginn..hehe).

Málshættirnir eru eftirfarandi:

Frá Birtu og Mána: Syngur hver með sínu nefi.

Frá Sólrúnu: Ekki þarf góðs að iðrast.

Frá mömmu og pabba til okkar Sigurjóns: Bjalla er bjórfullur maður.

Frá okkur til okkar: Hugur ræður hálfum sigri.

Það er annars bara tæp vika í að Sigurjón komi aftur heim...jeij.  Það verður kjúkllingur í páskamatinn hjá mér en sennilega gerum við bara e-ð fínna næstu helgi í staðinn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 08:56:00 / aldis

frænkufjör..

..Við Sólrún gáfum Birtu frænku okkar þriggja daga ferð til Kaupmannahafnarí fermingargjöf, sem hófst á þriðjudaginn og lýkur á morgun.  Það er búið að vera svaka stuð, við búnar að tæma H&M og svona..hehe

Jæja, ég er farin að gera vinabönd :) og svo er planið að fara á Bakkann á eftir... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 10:42:10 / aldis

Þá er maður..

..staddur á Íslandinu góða enn einu sinni :)

Lítið planað svo sem nema klipping á morgun og fermingarveisla hinn..og svo að hjálpa til við að undirbúa fermingarveisluna (því hún er sko hjá okkur) og reyna að læra og svo partý annað kvöld..humm, kannski hef ég alveg níg að gera..hehe

Ég fer aftur til Danmerkur á þriðjudagsmorguninn... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 20:53:14 / aldis

ein heima...

...eða reyndar mest í skólanum..hehe

Grjóni fór til Íslands í gærkvöldi og þegar ég var búin að keyra hann útá völl fór ég beint í skólann og var þar til ca. kl.22, svo sofaði ég yfir því sem ég þurfti að lesa fyrir daginn í dag.

Og núna er ég aftur stödd í skólanum og klukkan að verða 23 og sennilega verð ég líka lengi annað kvöld..úff hvað ég verð fegin að komast í páskafrí :)

Ég (og ansi margir aðrir) týndi klukkutíma um helgina...sem sagt kominn sumartími. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24